Collection: MBST - Open System

 

Open System er minni útgáfa af Artho Spin Flex og býður upp á sömu virkni en með meiri sérhæfingu fyrir meðhöndlun á einstaka útlim eða smærri svæðum líkamans. Tækið er sérstaklega hannað til að einblína á einn útlim, til dæmis þegar þörf er á meðferð fyrir eitt hné en ekki hitt. Það er einnig mjög hentugt fyrir minni útlimi, eins og fingur og hendur, þar sem nákvæmni og sértæk meðhöndlun skiptir miklu máli.

Rétt eins og Artho Spin Flex er Open System gagnlegt við meðhöndlun á slitgigt, bráða meiðslum á vöðvum, liðböndum og sinum, sem og langvinnum meiðslum í sömu vefjum. Tækið styður við uppbyggingu beina og beinagrindarstrúktúra og nýtist vel við endurhæfingu. Open System veitir einstaklingsmiðaða meðferð fyrir smærri líkamssvæði og tryggir markvissan stuðning við endurhæfingarferlið.

 

Bókanir og fyrirspurnir fara fram í gegnum tölvupóst. Vinsamlegast sendið á atli@inter.is fyrir frekari upplýsingar og bókanir.