Privacy policy

Inter selur vörur í verslun að Vatnagörðum 12, 104, Reykjavík, sem og í vefverslun sinni á vefsvæðinu: www.interverslun.is. Inter er í eigu Inter ehf., kt. 5601032710,  Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Inter annars vegar og kaupanda vöru (einnig vísað til sem "viðskiptavinur" eða "notandi").

Viðskiptavinur (eða "kaupandi") er sá einstaklingur sem kaupir vöru í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Viðskitpavinur getur líka verið fyrirtæki og eiga þá við lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Um viðskipti í vefverslun Inter gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Um viðskiptin í vefverslun gilda einnig lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Ofangreind lög gilda um réttarstöðu viðskiptavinar og seljanda þegar sérstökum ákvæðum þessara viðskipta

Skilmálar þessir eiga við um kaup á vöru í verslun og/eða í vefverslun Inter eftir því sem við á hverju sinni. Með því að samþykkja skilmála þessa staðfestir viðskitpavinur að hann er upplýstur um rétt sinn og skyldur við kaup á vöru í Inter. Frávik frá þessum skilmálum telst ekki samþykkt nema með undirritun seljanda. Inter áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum sé þess þörf og taka breytingarnar þá gildi við birtingu uppfærðra skilmála á vefsíðu Inter. Ef um verulegar breytingar er að ræða mun Inter birta sýnilega tilkynningu þess efnis á vefsíðu Inter vefverslunnar.

 

Inter selur vörur í verslun og í vefverslun og býður kaupanda að vitja vörunnar í verslun eða fá vöruna senda á skilgreindan áfangastað. Eftir atvikum selur Inter vörur í umboði þriðja aðila og geta slíkir þriðju aðilar borið beina ábyrgð gagnvart kaupanda. Leitast er við að upplýsa kaupanda þegar það á við. Öll verð í vefversluninni er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar. .

Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndaryfirlýsingu Inter þar sem finna má m.a. upplýsingar um eftirfarandi:

  • Meðhöndlun persónuupplýsinga vegna almennra samskipta við Inter vefverslunnar
  • Meðhöndlun persónuupplýsinga við heimsókn á vefsíðu Inter vefverslunnar
  • Meðhöndlun persónuupplýsinga við kaup á vörum í vefverslun Inter vefverslunnar
  • Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við markaðs- og kynningarstarf Inter vefverslunnar
  • Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun í Inter vefverslunnar

Persónuverndarlög kveða á um og tryggja einstaklingum ákveðin réttindi varðandi meðhöndlun persónuupplýsinga.