Shipping policy

Viðskiptavinur sem kemur í verslun og kaupir vöru fær vöruna afhenta þar. Vara sem keypt er í vefverslun getur viðskiptavinur ýmist valið að sækja í verslunina sjálfa eða valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað.

Kaupandi, sem pantað hefur í gegnum vefverslun en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, er hann vitjar vörunnar. Inter vefverslun tekur sér 1-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun.

Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað tekur Inter vefverslun sér 1-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Upphæð sendingarkostnaðar ræðst af þeim sendingarmáta sem viðskiptavinur velur. 

Eingöngu er hægt að fá vörur Inter vefverslunnar sendar innan höfuðborgarsvæðisins og eftirfarandi nágreni: Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn. Inter vefverslun áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.