Terms of service
Inter selur vörur í verslun að Vatnagörðum 12, 104, Reykjavík, sem og í vefverslun sinni á vefsvæðinu: www.interverslun.is. Inter er í eigu Inter ehf., kt. 5601032710, Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Inter annars vegar og kaupanda vöru (einnig vísað til sem "viðskiptavinur" eða "notandi").
Viðskiptavinur (eða "kaupandi") er sá einstaklingur sem kaupir vöru í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Viðskitpavinur getur líka verið fyrirtæki og eiga þá við lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Um viðskipti í vefverslun Inter gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Um viðskiptin í vefverslun gilda einnig lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Ofangreind lög gilda um réttarstöðu viðskiptavinar og seljanda þegar sérstökum ákvæðum þessara viðskipta
Skilmálar þessir eiga við um kaup á vöru í verslun og/eða í vefverslun Inter eftir því sem við á hverju sinni. Með því að samþykkja skilmála þessa staðfestir viðskitpavinur að hann er upplýstur um rétt sinn og skyldur við kaup á vöru í Inter. Frávik frá þessum skilmálum telst ekki samþykkt nema með undirritun seljanda. Inter áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum sé þess þörf og taka breytingarnar þá gildi við birtingu uppfærðra skilmála á vefsíðu Inter. Ef um verulegar breytingar er að ræða mun Inter birta sýnilega tilkynningu þess efnis á vefsíðu Inter vefverslunnar.
Inter selur vörur í verslun og í vefverslun og býður kaupanda að vitja vörunnar í verslun eða fá vöruna senda á skilgreindan áfangastað. Eftir atvikum selur Inter vörur í umboði þriðja aðila og geta slíkir þriðju aðilar borið beina ábyrgð gagnvart kaupanda. Leitast er við að upplýsa kaupanda þegar það á við. Öll verð í vefversluninni er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar. .
Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndaryfirlýsingu Inter þar sem finna má m.a. upplýsingar um eftirfarandi:
- Meðhöndlun persónuupplýsinga vegna almennra samskipta við Inter vefverslunnar
- Meðhöndlun persónuupplýsinga við heimsókn á vefsíðu Inter vefverslunnar
- Meðhöndlun persónuupplýsinga við kaup á vörum í vefverslun Inter vefverslunnar
- Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við markaðs- og kynningarstarf Inter vefverslunnar
- Meðhöndlun persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun í Inter vefverslunnar
Persónuverndarlög kveða á um og tryggja einstaklingum ákveðin réttindi varðandi meðhöndlun persónuupplýsinga.
Viðskiptavinur sem kemur í verslun og kaupir vöru fær vöruna afhenta þar. Vara sem keypt er í vefverslun getur viðskiptavinur ýmist valið að sækja í verslunina sjálfa eða valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað.
Kaupandi, sem pantað hefur í gegnum vefverslun en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, er hann vitjar vörunnar. Inter vefverslun tekur sér 1-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun.
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingastað tekur Inter vefverslun sér 1-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Upphæð sendingarkostnaðar ræðst af þeim sendingarmáta sem viðskiptavinur velur.
Eingöngu er hægt að fá vörur Inter vefverslunnar sendar innan Íslands. Inter vefverslun áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.