Refund policy
Skilafrestur á keyptum vörum í verslun og vefverslun er 30 dagar frá dagsetningu kvittunar eða rafræns reiknings fyrir kaupunum.
Skil á vöru eru háð eftirfarandi skilyrðum:
- Að vöru sé skilað innan 30 daga frá dagsetningu kvittunar/rafræns reiknings fyrir kaupunum.
- Framvísað sé kvittun/rafrænum reikningi fyrir kaupunum eða vara merkt með skiptimiða.
- Að varan sé ógölluð, í fullkomnu lagi og í söluhæfu ástandi
- Að varan sé ónotuð
- Að varan sé í óuppteknum og/eða upprunalegum umbúðum.
- Að allir aukahlutir sem fylgja með vörunni, ef við á, séu til staðar.
- Að vara sé ekki sérpöntuð eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar eða á annan hátt framleidd og afhent samkvæmt forskrift kaupandans eða ber skýrt auðkenni hans.
- Að vara sé ekki fyrnd eða þess eðlis að líklegt sé að hún fyrnist/rýrni, sbr. matvara og snyrtivara.
- Að varan sé ekki útsöluvara eða tilboðsvara og/eða sérstaklega merkt þannig að henni fáist ekki skipt.
Starfsfólk Inter metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða neita viðskiptavini um fulla endurgreiðslu sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt. Starfsmenn Inter geta þó í einstaka tilvikum ákveðið að taka á móti vöru þó ofangreind skilyrðu séu ekki uppfyllt og fær viðskiptavinur þá kaupverðið endurgreitt að hluta, að hámarki 70% af kaupverði.
Ef kaupandi telur sig hafa keypt eða fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það í verslun eða með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: Inter@inter.is um leið og galla er vart sem inniheldur lýsingu á umræddum vörugalla. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Sannarlega gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent eða send kaupanda. Sé gallaðri vöru skilað með endursendingu greiðir Inter sendingarkostnað. Sýna þarf kvittun eða senda rafrænan reikning með til staðfestingar á því að hin gallaða vara hafi verið keypt í Inter. Um galla fer að öðru leyti samkvæmt lögum nr. 2003/48 um neytendakaup.
Mistök í afgreiðslu á vöru eru að sjálfsögðu leiðrétt eins fljótt og hægt er, kaupanda að kostnaðarlausu. Rangt afgreiddar vörur verða þó að berast innan viku frá endurgreiðlu þannig að leiðrétta megi mistök við afgreiðslu og afhenda kaupanda rétta vöru.